REVEAL fundur á Tæknisetri
REVEAL fundur á Tæknisetri. Nýverið hófst fjögurra ára evrópskt þróunarverkefni á orkugeymslu með áli, REVEAL. Tæknisetur er í forsvari verkefnisins en einnig koma að því íslenska sprotafyrirtækið Arctus Aluminium og sérfræðingar frá Sviss, Slóveníu, Noregi, Tékklandi, Þýskalandi og Hollandi. EC og svissnesk yfirvöld styrkja verkefnið um samtals 3,7 milljónir evra.