13. maí 2026

Arctus Aluminium fær styrk til þróunar kolefnislausrar álframleiðslu

Arctus Aluminium fær styrk til þróunar kolefnislausrar álframleiðslu

Arctus Aluminium hefur hlotið styrk úr Loftslags- og orkusjóði til áframhaldandi þróunar á nýrri tækni fyrir kolefnislausa álframleiðslu. Styrkurinn verður nýttur til uppskölunar framleiðslukers í tilraunaverksmiðju á Grundartanga í samstarfi við Norðurál.

Arctus Aluminium hefur þróað tæknina í samstarfi við Tæknisetur og fjölmarga innlenda og erlenda samstarfsaðila undanfarin tíu ár. Arctus er eitt af sprotafyrirtækjunum með aðstöðu hjá Tæknisetri. Verkefnið á Grundartanga verður unnið í samstarfi Arctus og Norðuráls við Tæknisetur, Eflu, Háskólann í Reykjavík og fleiri samstarfsaðila í iðnaði og rannsóknum.

Ný nálgun í umhverfisvænni álframleiðslu

Markmið verkefnisins er að skala upp rafgreiningartækni til kolefnislausrar framleiðslu áls án losunar koltvísýrings með því að nota ekki hefðbundin kolefnisskaut sem mynda CO₂ í framleiðsluferlin. Nýja álframleiðslutæknin losar eingöngu súrefni með málm- og keramikrafskautum sínum.

Samhliða minni losun gróðurhúsalofttegunda felast í tækninni minni orkunotkun, bættri nýtingu hráefna, einfaldari rekstri og aukinni sjálfbærni. Tilraunaverksmiðjan verður mikilvægt skref í að sannreyna tæknina í iðnaðarumhverfi og undirbúa uppskölun framleiðslukera í fulla stærð.

Ísland sem vettvangur umhverfisvænnar iðnaðartækni

Ísland hefur sérstöðu þegar kemur að þróun sjálfbærrar málmframleiðslu vegna aðgengis að endurnýjanlegri orku, öflugrar þekkingar og reynslu í orkufrekum iðnaði.

Með verkefninu mun Arctus Aluminium og samstarfsaðilar leggja sitt af mörkum til næstu kynslóðar álframleiðslu þar sem áhersla er lögð á minni umhverfisáhrif, bætta orkunýtni og samkeppnishæfni til framtíðar.

Tilraunaverksmiðjan á Grundartanga verður byggð upp í samvinnu við Norðurál, Tæknisetur, Eflu og Háskólann í Reykjavík og mun skapa mikilvægan vettvang fyrir áframhaldandi þróun og prófanir á tækninni við raunverulegar iðnaðaraðstæður.

Tæknisetur óskar Arctus Aluminium innilega til hamingju með styrkinn.

Um Arctus Aluminium

Íslenska fyrirtækið Arctus Aluminium hefur unnið að þróun nýrrar tækni fyrir kolefnislausa álframleiðslu með áherslu á óvirk rafskaut, lághita-rafgreiningu súráls, betri orkunýtni og sjálfbæran framleiðsluferil. Verkefnið hefur verið unnið í nánu samstarfi við sérfræðinga Tækniseturs, Háskólans í Reykjavík og erlendar rannsóknarstofur og fyrirtæki.

Tengdar fréttir