Fréttir15. maí 2026

Forvitin Rauð á Hönnunarmars

Forvitin Rauð á Hönnunarmars

Í síðustu viku fór fram sýning á rannsóknarverkefni Hólmfríðar Benediktsdóttur og Unu Maríu Magnúsdóttur í grafískri hönnun þar sem þær köfuðu ofan í útlit, uppsetningu og innihald tímaritsins Forvitin Rauð. Tímaritið var málgagn Rauðsokkahreyfingarinnar á árunum 1972-1982 en Rauðsokkur börðust fyrir auknum réttindum kvenna.

Þær Hólmfríður og Una María, með hjálp Tækniseturs, hönnuðu og prentuðu út prentstimpla úr stáli með orðum og leturgerð tímaritsins, en fyrirsagnaletrin í Forvitin Rauð voru handgerð til að byrja með. Það var ákveðin áskorun að prenta út slíka stimpla, en þrátt fyrir formkröfur sem henta ekki prenttækninni komu listmunirnir fallega út eins og sjá má á meðfylgjandi myndum.

Fyrstu þrjú tölublöð tímaritsins
Prentstimplar úr ryðfríu stáli
Nærmynd af prentstimplum
Maíútgáfa tímaritsins frá 1978

Tengdar fréttir