Verkfræðinemar Háskóla Íslands heimsækja Tæknisetur
Rauan Meirbekova
Verkefnastjóri

Annars árs nemar í verkfræði við Háskóla Íslands heimsóttu Tæknisetur þann 3. nóvember síðastliðinn. Í heimsókninni fengu þau innsýn í starfsemi Tækniseturs og þeim aðferðum sem þar eru notaðar. Þau fengu kynningu á Reveal verkefninu og skoðuðu nýjustu rannsóknar- og þróunaraðstöðu setursins.
Nemendur fræddust um ýmsar hátæknilausnir sem eru í boði hjá Tæknisetri, þar á meðal þrívíddarprentun málma og plasts, rafeindasmásjárskoðun (SEM) og Leco-greiningu til efnisgreiningar.
Heimsóknin veitti nemendum dýrmætt tækifæri til að kynnast fremstu tækni og skilja notkun hennar innan efnisfræði, framleiðslu og þróun ferla. Hún miðaði að því að styrkja tengsl milli fræðilegs náms og raunverulegra áskorana í nútímaiðnaði.


