Fréttir24. maí 2022

Skráning: Alþjóðleg vinnustofa um verkfræði beina og mjúkvefja

Skráning: Alþjóðleg vinnustofa um verkfræði beina og mjúkvefja

Það er okkur ánægja að bjóða ykkur á alþjóðlega vinnustofu um verkfræði beina og mjúkvefja: byggingu, efnafræði, lífaflfræði og líffræði. Vinnustofan byggir á profiBONE verkefninu: þrívíddarprentun við lágt hitastig á lífvirkum keramískum beinígræðslum með stillanlega vélræna eiginleika.

Hvenær

21.–25. ágúst 2022

Hvar

Tæknisetur ehf (IceTec)

Árleynir 8

112 Reykjavík

Ísland

Skráning

Vinsamlegast skráið ykkur fyrir 21. 6. 2022 með því að senda tölvupóst á: gissur@taeknisetur.is.

Með skal fylgja ágrip (hámark 500 orð) og val á kynningarformi (fyrirlestur eða rafrænt veggspjald með 3 mínútna kynningu).

Efnisatriði

Lífefni (biomaterials)

Lífvirk aukefni

Bygging og efnafræði lífefna

Vélrænir eiginleikar lífefna

Lífaflfræði í líftæknilegri verkfræði

Háþróaðar aðferðir við frumuræktanir

Dýralíkön til greiningar á lífefnum

Lífmyndgreining og gagnagreining

Dagskrá

21. ágúst: Móttaka og tengslamyndun

22. ágúst: Fyrirlestrar

23. ágúst: Fyrirlestrar og rafræn veggspjöld

24. ágúst: Skoðunarferðir um rannsóknarstofur

25. ágúst: Pallborðsumræður

Skipuleggjendur

  • CEITEC Biomaterials

  • Tæknisetur

  • Genis

  • Lífvísindasetur

"Unnið saman að samkeppnishæfri Evrópu." profiBONE verkefnið (TO01000309) nýtur styrks að upphæð 1.433.000€ frá Íslandi, Liechtenstein og Noregi í gegnum EES-styrki og Tæknistofnun Tékklands.

Tengdar fréttir