29. júní 2026

Rannsóknarsamstarf yfir landamæri

Rannsóknarsamstarf yfir landamæri

Í vikunni komu rannsakendur frá SINTEF Industry, NTNU, Eramet og Háskólanum í Reykjavík saman á árlegum fundi ZeSiM verkefnisins.

Á fundinum var farið yfir framgang tveggja mikilvægra rannsóknaverkefna sem beinast að rafgreiningu (electrowinning) mangans og kísils sem leið til að draga úr kolefnislosun við framleiðslu þessara málma.

Þátttakendur heimsóttu einnig Tæknisetur, þar sem þau fengu kynningu á rannsóknarstofum setursins, auk þess sem farið var í heimsókn í jarðvarmavirkjun til að fræðast um íslenska jarðvarmanýtingu og endurnýjanlega orku.

Samstarfið hefur skilað góðum árangri og verkefnisaðilar hlakka til áframhaldandi samstarfs á síðustu tveimur árum verkefnisins.

Tengdar fréttir