Álvit hlýtur tvenn gullverðlaun
Rauan Meirbekova
Verkefnastjóri

Álvit, hlaut nýlega tvenn alþjóðleg gullverðlaun fyrir einkaleyfislausnir sínar á alþjóðlegu ARCA hugverka- og nýsköpunar sýningunni, Zagreb Króatíu.
Fyrri gullverðlaunin voru veitt fyrir framúrskarandi hugverka og nýsköpunar einkaleyfislausnir Álvits frá mótshöldurum ARCA. Seinni gullverðlaunin voru hins vegar veitt í sérstökum viðurkenningar flokki frá Kínversku hugverkasamtökunum (CAI) sem töldu Álvits hugverkalausnirnar vera líklegastar til að geta haft veruleg jákvæð umhverfisáhrif á heimsvísu.
Elínóra Inga Sigurðardóttir, formaður KVENN og nýsköpunarnefndar FKA og stjórnarmaður í SFH, Samtökum frumkvöðla og hugvitsmanna, tók við báðum verðlaunum fyrir hönd Álvits í Zagreb.
Álvit er eitt af tæknifyrirtækjunum á Tæknisetri og við óskum Álviti innilega til hamingju með árangurinn!


