Fréttir9. október 2026

Aluminium Global Exhibition 2026

DIÓ

Dagur Ingi Ólafsson

Verkefnastjóri

Aluminium Global Exhibition 2026

Í þessari viku, dagana 6-8. október fór fram stærsta alþjóðlega iðnaðarsýning í álgeiranum á heimsvísu, Aluminium Global Exhibition 2026 sem er haldið annað hvert ár í Düsseldorf í Þýskalandi. Í ár var þónokkuð um íslenskt hugvit á sýningunni, en Dagur Ingi hjá Tæknisetri ferðaðist til Düsseldorf fyrir hönd Álklasans til þess að kynnast sýningunni og fylgjast með íslenskum fyrirtækjum sem voru á staðnum að segja frá þeirra lausnum. Það voru þó ekki bara íslensk nýsköpunarfyrirtæki á sýningunni heldur voru íslendingar á vegum Rio Tinto og Alcoa með stærðarinnar bása og sendi Norðurál fjölda gesta.

Aluminium Global Exhibition hefur verið haldið frá 1997 en síðustu ár hafa um 20.000 gestir komið og heimsótt yfir 800 fyrirtæki sem eru með sýningarbása í fleiri en sex stærðarinnar sýningarhöllum. Sýninguna sækja flestir stærstu álframleiðendur heims, ásamt ýmsum þjónustuaðilum, áframvinnslum, framleiðendum búnaða og fleira.

Tvö íslensk nýsköpunarfyrirtæki voru með bás á sýningunni, en það voru þau DTE og SnerpaPower. Jakob Ásmundsson fór fyrir söluteymi DTE, en þær Íris Baldursdóttir og Gabriella Edberg voru fyrir hönd SnerpaPower.

Alur Álvinnsla lét sig ekki vanta á sýninguna, en Brynja Silness framkvæmdastjóri og Joe Hughes verksmiðjustjóri voru mætt til þess að kynna ECAl, nýja endurvinnsluferlið þeirra, en ferlið er það fyrsta sem er alveg lokað og skilar engum úrgangi, einungis afurðum.

Nýr forstjóri Rio Tinto á Íslandi, Sunna Björg Helgadóttir lét sig ekki vanta, en hún var á Rio Tinto básnum ásamt Árna Stefánssyni steypuskálsstjóra. Önnur framleiðslufyrirtæki í álklasanum voru einnig með bása, eins og Elkem og Alcoa.

Ásamt sýningarsvæðinu voru einnig mismunandi fyrirlestrasalir þar sem pallborðsumræður áttu sér stað um fortíð, nútíð og framtíð álframleiðslu, endurvinnslu og ýmsa þætti bransans. Það var afar ánægjulegt að sækja þessa sýningu, enda margt að skoða, mikið að sjá og mörgum að kynnast.

Einn sýningarsalur af 6.
Jakob Ásmundsson, forstjóri DTE ásamt söluteymi fyrirtækisins
Íris Baldursdóttir og Gabriella Edberg hjá SnerpaPower
Brynja Silness og Joe Hughes frá Alur Álvinnsla
Sunna Björg og Árni hjá Rio Tinto ÍSAL ásamt Degi Inga hjá Tæknisetri

Tengdar fréttir