top of page
Search

Íslensk-kanadískur netagerðarviðburður á Tæknisetri þriðjudaginn 17. febrúar klukkan 14:00

Í framhaldi af vaxandi samstarfi Íslands og Kanada á sviði áliðnaðar og nýsköpunar er ánægjulegt að kynna til sögunnar íslensk-kanadískan netagerðarviðburð sem haldinn verður í samstarfi við Alklasinn og kanadíska samstarfsaðila.

Viðburðurinn fer fram þriðjudaginn 17. febrúar klukkan 14:00 á Tæknisetri, og mun leiða saman fulltrúa fyrirtækja, rannsókna- og nýsköpunarumhverfis beggja landa. Áhersla verður lögð á samstarfstækifæri í sjálfbærum lausnum, tækniþróun og nýjungum í áliðnaði, með sérstaka áherslu á kolefnissnauða framleiðslu og framtíðarsýn greinarinnar.

Dagskráin býður upp á kynningar á íslenskum og kanadískum verkefnum, umræðu um sameiginlegar áskoranir og tækifæri, sem og gott rými fyrir tengslamyndun og óformlegar samræður um mögulegt framtíðarsamstarf.

Viðburðurinn byggir á farsælli heimsókn íslenskrar sendinefndar til Québec í september 2025 og er liður í áframhaldandi undirbúningi fyrir væntanlega heimsókn kanadískrar sendinefndar til Íslands árið 2026.

 

Um 12 fyrirtæki heimsækja Ísland og hafa mikinn áhuga fyrir því að tengjast íslenskum aðilum betur, en þau eru listuð hér að neðan:

 CQRDA

 Conformit

 Dynamic Concept

 Epiq Machinerie

 Fusium

 Lefebvre Industri-Al

 Mercier Industries

 PCP Aluminium/A3 Surfaces

 Staca

 Stas


Ferðalangar á leið í skoðunarferð um Rio Tinto Alma álverið.





 
 
 
bottom of page