top of page
Search

Álvit hlýtur tvenn gullverðlaun

Álvit, hlaut nýlega tvenn alþjóðleg gullverðlaun fyrir einkaleyfislausnir sínar á alþjóðlegu ARCA hugverka- og nýsköpunar sýningunni, Zagreb Króatíu.

Fyrri gullverðlaunin voru veitt fyrir framúrskarandi hugverka og nýsköpunar einkaleyfislausnir Álvits frá mótshöldurum ARCA. Seinni gullverðlaunin voru hins vegar veitt í sérstökum viðurkenningar flokki frá Kínversku hugverkasamtökunum (CAI) sem töldu Álvits hugverkalausnirnar vera líklegastar til að geta haft veruleg jákvæð umhverfisáhrif á heimsvísu.

Elínóra Inga Sigurðardóttir, formaður KVENN og nýsköpunarnefndar FKA og stjórnarmaður í SFH, Samtökum frumkvöðla og hugvitsmanna, tók við báðum verðlaunum fyrir hönd Álvits í Zagreb.

Álvit er eitt af tæknifyrirtækjunum á Tæknisetri og við óskum Álviti innilega til hamingju með árangurinn!


Sverrir Ásbjörnsson, Kristján Alexandersson, Sigrún Nanna Karlsdóttir og Sunna Ólafsdóttir Wallevik hjá Álvit taka við viðurkenningunum frá Elínóru Ingu Sigurðardóttur varaforseta Alþjóðasamtaka uppfinningafélaga (IFIA).


Álvit teymi: Sverrir Ásbjörnsson, Kristján Alexandersson, Sigrún Nanna Karlsdóttir og Sunna Ólafsdóttir Wallevik

 
 
 

Comments


bottom of page