Verkfræðinemar í heimsókn - Innsýn í nýsköpun og rannsóknir
- Rauan Meirbekova
- 1 day ago
- 1 min read
Nemendafélagið Vélin, sem samanstendur af véla-, iðnaðar- og efnaverkfræðinemum við Háskóla Íslands, heimsótti Tæknisetur nýlega. Þar fengu nemendur innsýn í nýjustu tækni og rannsóknir hjá sprotafyrirtækjum sem starfa á setrinu, auk þess að fá kynningu á starfseminni í heild.
Í heimsókninni skoðuðu nemendur aðstöðu fyrir þrívíddarprentun úr málmi og plasti, þar sem verkstæðið var kynnt og farið yfir notkunarmöguleika búnaðarins.
Að því loknu var rafgreiningarrannsóknarstofa heimsótt. Þar fengu nemendur að skoða eðalrafskaut og kynntust rannsóknarvinnu tengdri rafgreiningu. Sérfræðingar Tækniseturs og Jón Hjaltalín Magnússon, stofnandi Arctus, kynntu starfsemina og svöruðu spurningum nemenda.
Þá fengu nemendur kynningar frá sprotafyrirtækjum þar sem fjallað var um hugmyndir, vöruþróun og reynslu af nýsköpunarferlinu. Fyrirtækin Total Tempo og Uru Zone voru á meðal þeirra sem sýndu frumgerðir af vörum sínum.
Að lokum gafst nemendum tækifæri til að spjalla beint við frumkvöðla og rannsakendur.
Tæknisetur þakkar Vélinni fyrir skemmtilega heimsókn og vonast til að hún hafi veitt verðmæta innsýn í tengsl fræða, iðnaðar og nýsköpunar.






Comments