MESTABONE
LokiðLífstöðuefniLífvísindi

MESTABONE

Lýsing

Markmið verkefnisins er að þróa aðferð til að sameina beinvaxtarhvetjandi og prentanleg lífstoðefni í samsetta blöndu sem hentar til notkunar í þrívíddarprentaðferðum sem byggja á extrusion, t.d. svokallaðri fused deposition modelling, FDM. Kítósan hefur sýnt beinvaxtarhvetjandi eiginleika sem gera það að mikilvægum þætti í efnum til endurnýjunar á beini en það er hins vegar aflfræðilega veikt. Hugmyndin er að blanda kítósani við fjölliðu sem býr yfir betri aflfræðilegum eiginleikum og þróa samsettan þráð (filament) sem þrívíddarprentari tekur inn og nýtist í prentun á beinígræðum sem hvetja beinvöxt og hafa um leið fullnægjandi burð. Til að staðreyna aðferðina verða sýni til prófana og ígræði þrívíddarprentuð.

Hlutverk Tækniseturs

Vinna við efnisþróun, hönnun og prentun sýna og frumgerða ígræða. Prófanir og greiningar á byggingu, styrk, og efna- og eðlisfræðilegum eiginleikum. Þátttaka í prófunum á lífhæfi (biocompatibility).

Þakkir

Verkefnið er styrkt af Tækniþróunarsjóði.

Samstarfsaðilar

  • ICELAND - Genis ehf.
  • ICELAND - IceTec