MEET
LokiðEfnistækni

MEET

Lýsing

Markmið MEET verkefnisins er að gera jarðvarmaorku aðgengilegri heiminum með því að minnka upphafskostnað svokallaðra EGS (e. Enhanced Geothermal System) brunna. EGS virkjanir eru skapaðar þar sem hiti er í jörðu en lítið sem ekkert af gegndræpi og vökvamettun. Vatni er dælt niður í jörðina þar sem það hitnar svo hægt sé að framleiða með því rafmagn þegar því hefur verið dælt aftur uppá yfirborðið. Tæknileg framþróun á þessu sviði gerir því heiminum kleift að beisla þá miklu ónýttu jarðvarmaorku sem fyrirfinnst víða.

Helstu verk

·       Breyting á olíubrunnum í jarðvarmavirkjanir til þess að komast hjá því að bora niður í heita jörð, sem minnkar upphafskostnað virkjananna

·       Auka orkunýtingu á lághitavirkjunum (60-90°C) með því að nota tvívökvakerfi (e. Organic Rankine Cycle)

Til þess að auka markaðsvægi jarðavarmaorku í Evrópu verður helsta markmið MEET að sýna fram á hagkvæmni EGS virkjanna í rafmagns- og hitaframleiðslu þegar að öllum helstu jarðfræðilegum umhverfum (crystalline, sedimentary, metamorphic, volcanic) kemur. MEET mun einnig vinna að því að kortleggja efnilegustu svæðin þar sem EGS virkjanir gætu verið reistar í nálægri framtíð.

Hlutverk Tækniseturs

Tæringargreining og ráðgjöf á efnisvali

Þakkir

Þetta verkefni hefur hlotið fjármögnun frá rannsóknar- og nýsköpunaráætlun Evrópusambandsins Horizon 2020 samkvæmt styrksamningi nr. 764086-2.

Samstarfsaðilar

  • FRANCE - ÉS-Géothermie
  • FRANCE - Unilasalle
  • FRANCE - Geophysical Inversion & Modeling Labs
  • FRANCE - Université de Cergy-Pontoise
  • FRANCE - Vermilion Energy
  • FRANCE - ENOGIA
  • FRANCE - FEBUS OPTICS
  • FRANCE - Ayming
  • BELGIUM - Institut royal des Sciences naturelles de Belgique
  • GERMANY - Technische Universität Darmstadt
  • GERMANY - Universitätsenergie Göttingen GmbH
  • GERMANY - Georg August Universiat
  • GERMANY - Helmholtz-Zentrum Potsdam
  • GERMANY - GeoThermal Engineering
  • CROATIA - Fakultet elektrotehnike i računarstva
  • ICELAND - HS Orka
  • ICELAND - IceTec

Tengiliður

Dagur Ingi Ólafsson

dagur@taeknisetur.is