
LokiðSjálfvirkni
Ljósvarpa til rækjuveiða
Lýsing
Markmið verkefnisins er að þróa nýstárlega aðferð til þess að veiða fisk og botndýr með umtalsvert minna umhverfisspori en unnt er með hefðbundnum togveiðum. Framkvæmdar verða veiðitilraunir með tilraunagerð ljósvörpu, veiðarfæri sem snertir ekki botn og hefur minni mótstöðu í sjó en hefðbundin togvarpa. Ljósvarpa hlífir þannig búsvæðum á botni, skaðar ekki lífverur sem verða eftir á botni og minnkar losun gróðurhúsalofttegunda.
Í verkefninu verða viðbrögð ólíkra tegunda könnuð og veiðihæfni ljósvörpu athuguð á fiskislóð. Þróað verður verklag og tækni við þær veiðar sem bestum árangri skila.
Hlutverk Tækniseturs
Þróun og smíði i tilraunagerð ljósvörpu, sem notuð verður við veiðitilraunir.
Frekari þróun og umbætur á tilraunabúnaði í verkefninu.
Þakkir
Verkefnið er styrkt af Tækniþróunarsjóði og AVS – rannsóknasjóði í sjávarútvegi
Samstarfsaðilar
- ICELAND - Optitog ehf.
- ICELAND - Marine and Freshwater Research Insitute (Hafró)