Endurheimt biks úr malbikskurli
mar 2024 – í gangiÍ gangiEfnaferlarMannvirki

Endurheimt biks úr malbikskurli

Lýsing

Langtímamarkmiðið er að nánast allt malbik sem fellur til sé endurunnið, tilgangur þessa verkefnis er að skapa forsendur til að hægt sé að fylgja alþjóðlega viðurkenndum stöðlum við þá framkvæmd hér á landi. Stórt skref var tekið á árinu 2024 með tilkomu búnaðar (hjá Tæknisetri) til að einangra bik úr malbiki og gera þar með mögulegt að meta eiginleika þess biks sem er endurunnið. Þá voru einnig stigin fyrstu skref við greiningu á þessu verkferli. Þetta verkefni mun byggja á þeirri vinnu og er markmiðið að allir verkþætti staðalsins um endurvinnslu malbiks ÍST EN 13108-8:2016 verði framkvæmdir og skoðað hverjar helstu fyrirstöður og/eða flöskuhálsar þessara prófana eru fyrir malbiksiðnaðinn hérlendis. Verkefnið styður við nauðsynlega innviðauppbyggingu, þróun verkferla en ekki síður þeirra sérfræðiþekkingar sem krafist er til að framfylgja malbiksrannsóknum.

Hlutverk Tækniseturs

Framkvæma rannsóknir og greiningar á þeim niðurstöðum

Þakkir

Verkefnið er styrkt af Rannsóknarsjóði Vegagerðarinnar.

Tímabil

mar 2024 – í gangi

Tengiliður

Edda Sóley Þorsteinsdóttir

edda@taeknisetur.is